Vetrarbraut

Nýtt hverfi í Garðabæ á einstöku byggingarlandi í nálægð við náttúruperlur.

Vetrarbraut

Nýtt hverfi í Garðabæ á einstöku byggingarlandi í nálægð við náttúruperlur.

Vetrarbraut er nýtt og heillandi hverfi sem rís miðsvæðis í Garðabæ. Framkvæmdir við uppbyggingu þess hófust á miðju ári 2023 en uppbyggingarsvæðið er á afar spennandi stað í nágrenni við Vífilsstaði, golfvöll GKG, útivistarsvæði Heiðmerkur og nýja íþróttaaðstöðu Stjörnunnar í Miðgarði. Skipulag svæðisins er umhverfisvottað af alþjóðlega vistvottunarfyrirtækinu BREEAM Communities.